Í þessari ferð munum við stefna á að njóta norðurljósanna gangandi á snjóskóm úti í Íslensku vetrarríki.
Við munum ávallt velja besta staðinn fjarri mannabyggðum hverju sinni til að ganga á, með tilliti til veðurs, ljósmengunar og öryggis gesta okkar.
Eins og í öllum okkar norðurljósaferðum mun leiðsögumaðurinn fræða gesti um norðurljósin og að auki bjóða upp á heita súpu eða heitt kakó
Í öllum okkar norðuljósaferðum tökum við myndir og deilum með gestum okkar í lok ferðar
ATH. Norðurlósin eru náttúrufyririgði og stundum getur brugðið til beggja vona hvort þau sjáist eða
ekki, þó spáin sé góð. Við fylgjumst ávallt með veður og norðurljósa spá og förum ekki í norðurljósaferðir nema að það sé ágætis von um að ljós sjáist.
Ef spáin er óhagstæð og ferð aflýst, þá er ekki rukkað fyrir ferðina og hún endurgreidd að fullu, þeim sem hafa fyrirframgreitt ferðina.
Allar okkar ferðir eru Private ferðir
Verð:
1-3 pers............. 87.600 kr. heildar verð
4 pers or more..... 24.900 kr. per pers
Innifalið:
Leiðsögumaður, létt nesti, broddar, höfuðljós, snjóskór
Erfiðleikastig:
3 af 5 í erfiðleika stuðlinum
Koma með:
Gönguskó, auka vatnsflösku og góð föt, klæðnaður eftir veðri (gott að reikna með kaldara veðri til fjalla)
Ferðin tekur sirka 3-5 klst.
Ferðin byrjar frá Mánamörk 3-5 í Hveragerði,eða frá Reykjavík og næsta nágrenni