Jeppa & Hveraeldun

  • Einkaferð
  • Lengd Ferðin tekur sirka 4-6 klst. og er 1-3 km löng
  • Erfiðleikastig 1 af 5
  • Árstíð Allt árið

Í þessari ferð munum við ferðast um stórbrotna náttúru Hengilsvæðisins á sérútbúnum jeppa, upp brattar brekkur, yfir ár og um skemmtilega slóða á Hengilsvæðinu sem er eitt stærsta háhitasvæði Íslands. Svæðið hefur mikinn fjölbreytileika að geyma þar sem má finna græna dali ,fallegar klettamyndanir og hraun, óviðjafnalegt útsýni og mikið magn hverasvæða.

Hengilsvæðið er einnig eitt stærsta eldfjallasvæði Íslands og munum við fræða ykkur um jarðsögu þess sem og eldvirkni svæðisins undangenginna árþúsunda. þessi ferð gefur tækifæri á mörgum stuttum göngutúrum til að komast í meiri nánd við náttúruna.

Í lok ferðar munum við elda 3 rétta máltíð á einu hverasvæðanna og í boði er:

Foréttur, Hveraelduð tómatsúpa.

Aðalréttur, Hveraeldaður lax

Eftirréttur, Hverabakað rabbabarabrauð

Verð

Verð fyrir ferðina
1–4 manns131.600 kr. heildarverð
5 manns eða fleiri32.600 kr. á mann

Aukaþjónusta

Pick up
1–4 manns: 20.000 kr. heildarverð 5 manns eða fleiri: 5.000 kr. á mann Free pick up from Hveragerdi & nearest surroundings

Öll verð eru í íslenskum krónum. Bókunar- og afbókunarskilmálar

Innifalið

  • nesti fyrir daginn og að sjálfsögðu þrautreyndur leiðsögumaður með margra ára reynslu af svæðinu.

Koma með

  • Bakboka, auka vatnsflösku og góð föt sem auðvelt er að hjóla í, klæðnaður eftir veðri
  • (gott að reikna með kaldara veðri upp til fjalla)

Gott að vita

  • The tour is a private & tailor made to you, if you are traveling with a large group, contact us and we can send you a price offer for your group
Erfiðleikastig
1 af 5 í erfiðleika stuðlinum,
Vegalengd
1-3 km (1-2 miles)
Upphafsstaður
Ferðin hefst frá Mánamörk 3-5 Hveragerði

Þér gæti líka líkað

Landmannalaugar-Hekla

Landmannalaugar er einn vinsælasti og fjölsóttasti ferðamannastaður á hálendi Íslands. Enda ekki af ástæðulausu! þarna hafa eldsumbrot og jarðhiti skapað einstæðar hraunmyndanir og litasamsetningar í náttúrunni.

  • Lengd: 9–12 klst.
  • Erfiðleikastig 1 af 5

Frá 39.600 kr. á mann

Þórsmörk Jeppaferð

Að koma í Þórsmörkina að sumri til er mikil upplifun. Óvíða á Íslandi er fegurðinn og andstæðurnar meiri, jöklar, jökulsorfið land, grænt birki, birki ilmur, lyng, ægifagrar bergmyndanir, jökulsár, krystal tærar bergvatnsár…

  • Lengd: 9–12 klst.
  • Erfiðleikastig 1 af 5

Frá 39.600 kr. á mann

Jeppa, Hella & Baðferð

Jeppaferð á sérútbúnum jeppa ,hellaferð í 5þúsund ára gamlan helli og gönguferð og bað í náttúrulega heitann læk í Reykjadal.

  • Lengd: 8–10 klst.
  • Erfiðleikastig 2–4 af 5

Frá 39.600 kr. á mann

Senda fyrirspurn