Reykjadalur Baðferð
þessi gönguferð hentar flestum getustigum og munum við hefja gönguna í nágrenni við Reykjadal sem er orðinn einn þekktasti dalur og baðstaður á Íslandi.
- Lengd: 4–7 klst.
- Erfiðleikastig 2 af 5
Frá 32.900 kr. á mann
+1 mynd
Myndir 6
Landmannalaugar er einn vinsælasti og fjölsóttasti ferðamannastaður á hálendi Íslands. Enda ekki af ástæðulausu! þarna hafa eldsumbrot og jarðhiti skapað einstæðar hraunmyndanir og litasamsetningar í náttúrunni.
Við munum notast við sérútbúinn jeppa á ferð okkar inn í laugar og munum ferðast á hefðbundum slóðum í bland við fáfarnari.
Á leið okkar munum við vera í nálægð við Heklu sem er virkasta eldfjall Íslanda sem og hafa viðkomu við nokkur ægifögur fjallavötn sem eiga það sameiginlegt að vera gamlir eldgígar.
Er inn í laugar er komið munum við hafa nokkra möguleika á gönguferðum á öllum erfiðleika stigum en eiga allar það sameiginlegt að fanga einstæða fegurð og litadýrð Landmannalauga.
í lok göngunnar gefst kostur á að baða sig í laugunum sem staðurinn dregur nafn sitt af, og slaka á eftir góðann dag.
Ath, Hægt er að útfæra þessa ferð sem fjallahjólaferð fyrir vana fjallahjólara
Allar okkar ferðir eru Private ferðir
| 1–4 manns | 198.000 kr. heildarverð |
|---|---|
| 5 manns eða fleiri | 39.600 kr. á mann |
Öll verð eru í íslenskum krónum. Bókunar- og afbókunarskilmálar
þessi gönguferð hentar flestum getustigum og munum við hefja gönguna í nágrenni við Reykjadal sem er orðinn einn þekktasti dalur og baðstaður á Íslandi.
Frá 32.900 kr. á mann
Ferðin býður upp á göngu í í óviðjafnanlegri náttúrufegurð með stórkostlegu útsýni og ekki skemmir fyrir að baða sig og slaka á í náttúrulegri laug þar sem enginn annar er!
Frá 32.900 kr. á mann
Þessi gönguferð er ein af okkar uppáhalds! Förum upp á einn af fáfarnari tindum á Hengilsvæðinu.
Frá 32.900 kr. á mann