Um okkur
Iceland Activities fjölskyldan hefur sérstöðu á margan hátt er kemur að náttúru og útivist og ber þar fyrst að telja hversu langan tíma við höfum ferðast saman sem fjölskylda. Frá því að börnin voru ung voru þau tekinn með í allar ferðir, sama hversu krefjandi þær voru ,því má segja að börninn séu fædd útivistarfólk.
Hugmyndin að fyrirtækinu og að gera þetta að okkar aðalstarfi var lengi í gerjunn, því safnaðist upp gríðaleg reynsla samhliða því að vera alltaf að ferðast saman.
Við erum eitt af fáum fyrirtækjum með það markmið að sinna fólki á öllum aldri. Þar sem við aðlögum hverja ferð að getu, áhuga og aldri þeirra sem ferðast með okkur. Og þá erum við ekki að velta því fyrir okkur hvort við komum heim einum klukkutímanu fyrr eða seinna. Okkar tími er ykkar tími!
Því fólk sem hefur lagt það á sig að heimsækja okkur, sumir um langan veg getur ávallt treyst því að þegar það kemur í ferð með okkur tjöldum við ávallt því besta sem til er hverju sinni og leiðsögumaðurinn sé Íslenskur og hluti af okkar fjölskyldu .
Enn eru nokkur ferðaþjónustu fyrirtæki rekinn í þessum anda á Íslandi S.S af hugsjón og eru lítil fjölskyldufyrirtæki. Við erum stolt af að vera í þeirra hópi og trúum því að þar liggja vaxtasprotar ferðaþjónustu á Íslandi í dag.