Hagnýtar upplýsingar
Iceland Activities er opið alla daga ársins nema að lokað er á aðfangadagn og jóladag.
Við bjóðum upp á skipulagðar ferðir upp í margra daga ferðir sem má finna á heimasíðu okkar og eins sérsniðnar ferðir að óskum viðskiptavina hverju sinni.
Leiðsögumenn okkar eru allir Íslenskir og eru líka ensku mælandi.
Hægt er að leigja útivistarbúnað hjá okkur s.s skó og annann fatnað en þá þarf að láta okkur vita af því tímanlega fyrir ferð.
Allar okkar ferðir geta verið háðar veðri og aðstæðum og áskiljum við okkur rétt ti að breyta þeim eða hætta við þær ef við teljum öryggi viðskiptavina okkar í hættu.
Hvar er Iceland Activities staðsett?
Iceland Activities er staðsett í Hveragerði og er íbúafjöldi um 2.700 og er bærinn staðsettur á virku Hverasvæði í útjaðri Hengilsins sem er eitt stærsta eldfjalla og háhitasvæði Íslands.
How to get to Hveragerdi?
Hveragerði er staðsett 38km austur af Reykjavík, sirka 30 mínútna akstur. Við bjóðum upp á að ná í fólk í allar okkar ferðir s.s í næsta nágrenni við okkur og á Reykjavíkursvæðinu.
Gistimöguleikar í Hveragerði
Hveragerði býður upp fjölda frábærra gistimöguleika og getum við aðstoðað við að finna þann sem hentar best hverju sinni.
Dagsferðir
Dagsferðirnar okkar eru frá 2 tímum upp í heilsdagsferðir og markmið okkar er ávallt að sýna gestum okkar ,uppáhaldsstaðina okkar.
• Við sérhæfum okkur í fámennari hópum til að upplifuninn verði sem best og bjóðum upp á ferðir við allra hæfi.
• Nesti og drykkir eru innfaldir í öllum okkar ferðum.
• Við bjóðum upp á persónulega þjónustu.
• Við tökum fullt af myndum í öllum og deilum þeim með viðskiptavinum að lokinni ferð.
• Ef þú hefur einhverjar séróskir um ferð eða ferðatillhögun þá er það okkar ánægja að geta orðið
við þeim.
Pakkaferðir og yfirnótt ferðir
Við bjóðum upp á vandaðar pakkaferðir sem eru sniðnar að Hverjum hóp fyrir sig með það að markmiði að gera ferðina eins eftirminnilega og hugsast getur fyrri hvern hóp.
Hópefli
Aparóla - Íshokkí - Krulla - Hópleikir - Hellaferðir - Brimbrettaferðir og Hjóla & Gönguferðir.
Bjóðum upp á fjölbreytt og óhefðbundið hópefli fyrir hópinn þinn, með það að leiðarljósi að hrista hópinn saman og skapa skemmtilegar minningar.