Ein þekktasta ferð íslands er hinn svo kallaði Gullni hringur. Við bjóðum þessa ferð með öðru sniði en flest önnur fyrirtæki.
Við stoppum á stöðum sem eru lítt þekktir en alveg jafn spennandi og hinir hefbundu á Gullna hringnum sem við stoppum að sjálfsögðu líka á.
Við byrjum á að sýna ykkur heimabæinn okkar Hveragerði sem er þekktur fyrir stórkostlega náttúru, jarðhita, jarðskjálfta og garðyrkju.
Staðsetning bæjarins er einstök, að því leiti að bærinn byggðist upp á virku jarðhitasvæði og hafa bæjarbúar nýtt jarðhitann sér til lífsviðurværis í gegnum árin.
Við munum fræða ykkur um sögu bæjarins ásamt því að bjóða upp á hveraeldaðar veitingar úr einum af hverunum.
Þar næst förum við á hinar hefðbundu slóðir í Gullna hringnum s.s. Geysir og Gullfoss sem flestir
Íslendingar þekkja.
Við munum enda ferð okkar á Þingvöllum sem er tvímælalaust einn merkasti staður Íslands hvort
sem litið er til sögu okkar eða náttúru.
Þetta svæði þekkjum við vel og munum sýna ykkur og kynna á annan hátt en fólk er vant og
jafnframt fara með ykkur út fyrir hinar hefðbundu ferðamannaslóðir.
Allar okkar ferðir eru Private ferðir
Verð
Verð fyrir ferðina
| 1–5 manns | 160.000 kr. heildarverð |
| 6 manns eða fleiri | 32.000 kr. á mann |
Aukaþjónusta
Öll verð eru í íslenskum krónum. Bókunar- og afbókunarskilmálar
Ekki innifalið
- Lunch is not included, you will be offered some light snacks. But on our way you will have several options with stops where we can stop for lunch. for example the Icelandic lamb soup at Gullfoss café. You can also request when booking the tour to have lunch bag included and waiting for you when you arrive to our office.
Koma með
- Gönguskó, bakboka, auka vatnsflösku og góð föt, klæðnaður eftir veðri, gott er að taka með regnföt.
Gott að vita
- Feðin byrjar frá Mánamörk 3-5 í Hveragerði
- Erfiðleikastig
- erfiðleika stig ferðarinnar er í léttari kantinum.