Reykjadalur Fjallahjólaferð

  • Einkaferð
  • Lengd Ferðin tekur sirka 7-9 klst. og er 22 km löng
  • Erfiðleikastig 3 af 5
  • Árstíð Sumar

Þetta er ein elsta og þekktasta fjallahjólaleið á Íslandi.

Við bjóðum upp á þessa ferð í tveimur útgáfum í frekar léttri útgáfu og erfiðari útgáfu.

Í báðum útgáfunum hefst ferðin við afleggjarann inn á Ölkelduháls og er hjólað inn eftir línuveginum.

Í erfiðari útgáfunni er hjólað lengra inn eftir heiðinni á fáfarnari og meira krefjandi slóðum áður en farið er niður í Reykjadalinn.

Og að sjálfsögðu gefst kostur á að fara í bað í heita læknum í Reykjadal áður en hjólað er niður dalinn.

Á sirka 3 km kafla í Reykjadal má búast við göngufólki á ferð og því förum við auðvitað varlega á þeim kafla, en mælum með koma í ferðina snemma morguns eða seinnipart dags, þá er minna af fólki á ferð í dalnum.

Er niður er komið, hjólum við skemmtilega stíga í kring um Hveragerði á leið okkar að aðstöðunni okkar í Hveragerði þar sem ferðinni lýkur yfir góðum kaffi eða kakóbolla.

Verð

Verð fyrir ferðina
1–3 manns131.600 kr. heildarverð
4 manns eða fleiri35.800 kr. á mann

Aukaþjónusta

Pick up
1–3 manns: 20.000 kr. heildarverð 4 manns eða fleiri: 5.000 kr. á mann Free pick up from Hveragerdi & nearest surroundings

Öll verð eru í íslenskum krónum. Bókunar- og afbókunarskilmálar

Innifalið

  • fulldempað fjallahjól, hjálmur, nesti fyrir daginn og að sjálfsögðu leiðsögumaður sem þekkir svæðið eins og handarbakið á sér og með margra ára reynslu af leiðsegja í fjallahjólaferðum

Koma með

  • Sundföt, handklæði,, bakboka, auka vatnsflösku og góð föt sem auðvelt er að hjóla í, klæðnaður eftir veðri
  • (gott að reikna með svalara veðri til fjalla)

Gott að vita

  • The tour is a private & tailor made to you, if you are traveling with a large group, contact us and we can send you a price offer for your group
Erfiðleikastig
3 af 5 í erfiðleika stuðlinum.
Vegalengd
15-20 km (9-12 miles)
Upphafsstaður
Ferðin hefst frá Mánamörk 3-5 Hveragerði eða þar sem fólk óskar að við náum í það.

Þér gæti líka líkað

Útileguferð

Ferðastu í 2 daga um eitt stærsta virka eldfjallasvæði á Íslandi með leiðsögumanni sem hefur alið allan sinn aldur á svæðinu er óviðjafnanleg reynsla.

  • Lengd: 24 klst.
  • Erfiðleikastig 3 af 5

Frá 78.600 kr. á mann

Hveragerðis Hjólaferð

Þessi ferð er ein af vinsælli ferðunum okkar og ekki af ástæðulausu. Hún hentar öllum allt frá byrjendum til góðra fjallahjólara.

  • Lengd: 4–6 klst.
  • Erfiðleikastig 2 af 5

Frá 26.000 kr. á mann

Rafmagnsfjallahjólaferð

This is a customized e-bike adventure tailored to your biking skills. The aim is to bike up to the second biggest volcanic area of Iceland, the Hengill volcano, where we will ride fun single tracks, amazing views, hotsprings…

  • Lengd: 6–9 klst.

Frá 35.800 kr. á mann

Senda fyrirspurn