Hellaferðir
Eitt af sérkennum Íslands eru hraunhellarnir sem hafa allir orðið til á síðustu 10.000 árum samhliða eldsumbrotum.
- Lengd: 4–6 klst.
- Erfiðleikastig 2 af 5
Frá 32.900 kr. á mann
+1 mynd
Myndir 6
Eitt af sérkennum Íslands eru hraunhellarnir sem hafa allir orðið til á síðustu 10.000 árum.
Í þessari ferð munum við kanna einn af hellum suðurlands og hraunrás hans. Að stíga inn í þessa undraveröld sem hellarnir eru með höfuðljós og hjálm er eins og að stíga inn í annan heim.
Við munum fræða gesti okkar um tilurð og jarðfræði hellisins sem og bragða eitthvað af Íslenskum mat meðan við segjum ykkur nokkrar valdar sögur af tröllum og mönnum sem höfðust við í hellunum til forna.
Að hellaferðinni lokinni munum við kanna Hverasvæðið sem varð til í jarðskjálftanum 2008 rétt við Hveragerði og segja ykkur sögu þess og bjóða upp á létta máltíð sem samanstendur af:
Aðalréttur- Hveraelduð tómatsúpa eða kjötsúpa
Eftirréttur- Súkkulaði fondue eldað í hver
| 1–3 manns | 131.600 kr. heildarverð |
|---|---|
| 4 manns eða fleiri | 32.900 kr. á mann |
Öll verð eru í íslenskum krónum. Bókunar- og afbókunarskilmálar
Eitt af sérkennum Íslands eru hraunhellarnir sem hafa allir orðið til á síðustu 10.000 árum samhliða eldsumbrotum.
Frá 32.900 kr. á mann
Jeppaferð á sérútbúnum jeppa ,hellaferð í 5þúsund ára gamlan helli og gönguferð og bað í náttúrulega heitann læk í Reykjadal.
Frá 39.600 kr. á mann