Hveraganga

  • Einkaferð
  • Árstíð Allt árið

Skemmtileg hveraganga með heimamanni sem veitir skemmtiega innsýn & fræðslu um hverina og sögu Hveragerðis. Gengið er um fallegar slóðir í útjaðri bæjarins þar sem við sýnum ykkur t.d hvaða áhrif jarðskjálftar hafa haft og fræðum fólk um tilurð þeirra og hverasöguna almennt í Hveragerði. Við munum bjóða upp á léttar veitingar í miðri göngu þar sem boðið verður að smakka Hverasoðin egg, hverabrauð og drykkir.

Við sérsnýðum hverja göngu að óskum og getu hvers hóps og getum bætt inn í gönguna nokkrum skemmtilegum leikjum til þess að hrista hópinn saman.

Tími: 1-2 klst

Gönguleið: 1-3 km

Hafið samband Og við sendum verðtilboð fyrir hópinn þinn

Verðið fer eftir fjölda og hvernig hópeflið/ferðin er sett upp, endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á þessari ferð og við sendum tilboð í hópinn þinn.

Verð

Verð samkvæmt tilboði. Hafa samband

Öll verð eru í íslenskum krónum. Bókunar- og afbókunarskilmálar

Þér gæti líka líkað

Aparóla

Prófaðu etthvað nýtt! Frábær upplyfting fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum til að hrista hópinn saman og gera sér glaðan dag.

Frá 3.250 kr. á mann

Leikjaþrautabraut

Lang vinsælasta hópeflið okkar undanfarin ár. Leikjaþrautabrautin er frábær leið til að hrista hópinn saman og skapa skemmtilegan dag.

  • Lengd: 1–2 klst.

Frá 3.200 kr. á mann

Ratleikur

Samanstendur af allt að 10 stöðvum í útjaðri Hveragerðis þar sem lið ganga skemmtilega og fallega 3 km leið og þurfa að leysa þrautir og leiki sem verða á vegi þeirra (mannaðar og ómannaðar stöðvar) og safna þannig stigum sem…

  • Lengd: 2 klst.

Frá 5.900 kr. á mann

Senda fyrirspurn